Animo kaffivél - 1 stálkanna- Svört

Vörunúmer: 10385

  129.900 kr
  110.415 kr
  ANIMO kaffivélar - Tilboð

Excelso T er öflug og einföld kaffivél sem hentar vel fyrir vinnustaði, fundarherbergi, mötuneyti og aðra staði þar sem þörf er á góðu kaffi yfir daginn.

Kaffið er lagað beint í 2 lítra hitakönnu, sem heldur því heitu og fersku án þess að þurfa hitaplötu. Vélin lagar fulla könnu á aðeins um 7 mínútum og afkastagetan er allt að 18 lítrar á klukkustund, eða um 144 bollar.

Vélin er nett og tekur lítið borðpláss, en býður um leið upp á góða afkastagetu.

Helstu upplýsingar:

  • 2 lítra hitakanna fylgir
  • Afköst: allt að 18 lítrar / ca. 144 bollar á klukkustund
  • Uppáhelling: ca. 7 mínútur fyrir 2 lítra
  • Rafmagn: 1N~ 220–240 V
  • Afl: 2250 W
  • Mál: B 190 × D 370 × H 480 mm
  • Hámarkshæð: 650 mm
  • Vörunúmer: 10385