Elskuð, eftirsótt, aðdáunarverð
Vinsælasta sjálfvirka kaffivélin frá JURA er nú komin á fimmtu kynslóð, og státar af byltingarkenndum þægindum og þremur glæsilegum heimum kaffinautnar. Klassískir Hot Brew drykkir, Light Brew drykkir og Sweet Foam drykkir sem E8 býður upp á skapa grundvöll fyrir mörg augnablik óviðjafnanlegrar kaffiupplifunar.
E8 hellir upp á Hot Brew eða heita kaffidrykki á hefðbundin hátt fyrir kröftugt bragð og milda kaffidrykki með Light Brew uppáhellingu við um 60°C hitastig. Báða þessa kaffiheima, heitt eða milt, er hægt að sameina með Sweet Foam tækninni sem opnar inn á ennn þá stærri heim bragðupplifunar.
E8 er líka með snjalltækninni Coffee Timer. Tæknin gerir þér kleift að stilla vélina með J.O.E.® appinu þannig að hún helli upp á nýmalaðan morgunkaffibollann þinn um leið og þú ferð á fætur.
Ný kynslóð sjálfvirkra kaffivéla frá JURA sem eru með Quality Assistant eru hannaðar með aukin þægindi við daglega umgengni og aukna sjálfbærni í huga. Það tryggir bæði enn betri kaffigæði og lengri endingu kaffivélarinnar.
E8 er geislandi stílfögur og vekur aðdáun jafnvel í minni eldhúsum, bæði hvað varðar hönnun og kaffiupplifun.
%20-%2015749/E8_ED_sv%C3%B6rt%20helstu%20eiginleikar%201.jpg)
Nýjasta tækni tryggir auðvelda notkun
E8 býður upp á meiri þægindi en nokkru sinni fyrr. Þökk sé Coffee Timer og J.O.E.® appinu, er morgunkaffið þitt tilbúið um leið og þú vaknar – fullkomin leið til að byrja daginn. Quality Assistant tryggir betri nýtingu auðlinda þegar kemur að viðhaldi vélarinnar og einnig hámarks hreinlæti fyrir hámarks ánægju. E8 er auk þess með 3.5" litaskjá og þrýstitökkum sem gerir kaffiáhugamönnum auðvelt að ferðast á milli mismunandi heima kaffinautnar, sem eru litakóðaðir á skjánum til einföldunar.
%20-%2015749/E8_ED_sv%C3%B6rt%20helstu%20eiginleikar%202.jpg)
Nútímalegur glæsileiki
Hönnun vélarinnar er einstök og umhyggja fyrir smáatriðum augljós. Hágæða hráefni, fallegar útlínur og aðlaðandi 27 cm breidd bera vott um glæsilega hönnunar E8. Litasamsetning vélarinnar undirstrikar tímalaust, nútímalegt form hennar og gefur kaffivélinni glæsilegan og stílhreinan karakter.
%20-%2015749/E8_ED_sv%C3%B6rt%20helstu%20eiginleikar%203.jpg)
Hefðbundið Hot Brew, nýstárlegt Light Brew og sæt mjólkurfroða fyrir þá sem vilja
Þrír heimar kaffinautnar sameinast í nýjustu kynslóð E8. Mögulegt er að hella upp á hefðbundna heitbruggaða kaffidrykki, milda léttbruggaða kaffidrykki við fullkomið hitastig, en auk þess býður vélin þér inn í heim dásamlegra kaffidrykkja með sætri mjólkurfroðu. Þetta fjölbreytta úrval kaffidrykkja, alls 27 talsins, getur því gætt sérhverja kaffistund einstökum blæ – hvort heldur heitt, milt eða sætt.
%20-%2015749/E8_ED_%20sv%C3%B6rt%20helstu%20eiginleikar%204.jpg)
Nákvæmur grófleiki mölunar fyrir sérhvern kaffidrykk
Fyrsta flokks kaffi er afrakstur notkunar bestu mögulegu hráefna og fullkomnu ferli uppáhellingar. Til að skila fullkominni uppáhellingu kaffidrykkja frá öllum heimum kaffinautnar frá fyrsta bolla er E8 búinn P.A.G.2 kvörn. P.A.G.2 kvörnin fer aftur í hvíldarstöðu eftir hverja mölun, en þannig nást blæbrigði bragðs og ilms sérhvers kaffidrykkjar með sem hreinustum hætti. Kvörnin er auk þess endingargóð og skilar stöðugum, jöfnum gæðum mölunar yfir allan þjónustutímann.
Notendaleiðbeiningar
Tenging við J.O.E.®