Svartir kaffidrykkir sem veita hámarks ánægju
X4 býður upp á óviðjafnanlega kaffiupplifun. Vélin er með Professional Aroma kvörn (P.A.G.2) sem malar kaffibaunirnar fullkomlega og þremur nýstárlegum uppáhellingaraðferðum þróuðum af JURA. One-Touch Lungo uppáhelling töfrar fram ilmandi Americano og Lungo með sínu einkennandi bragði. Hefðbundið kaffi nýtur góðs af 3D uppáhellingartækni, á meðan Púlsuppáhellingaraðferð (P.E.P.®) tryggir espresso sem bragðast bæði öflugur en á sama tíma í jafnvægi.
X4 hefur stílfagurt notagildi. Íhlutir eru vel hannaðir sem auðveldar meðhöndlun, en auk þess er hægt að læsa vatns- og baunatanki. X4 kaffivélin býður kaffiunnendum upp á þægindi við notkun og síðast en ekki síst framúrskarandi kaffigæði. Mögulegt er að tengja vélina við greiðslukerfi, en vélin hentar vel fyrir mötuneyti, sjálfsafgreiðslu og stórar skrifstofur þar sem þarf að jafnaði að hella upp á allt að 100 bolla á dag.

Framúrskarandi kaffigæði
Nútímaleg Professional Aroma kvörn (P.A.G.2) malar kaffibaunirnar fullkomlega og tryggir að margbrotið bragð og ilmur sem einkenna hverja tegund bauna og ristun þeirra skili sér í kaffibollann. Kvörnin fer í hvíldarstöðu á milli uppáhellinga, sem fer betur með hana og lengir þar með endingartíma hennar. Þrjár mismunandi aðferðir við uppáhellingu tryggja auk þess að sérhver kaffidrykkur, sem valinn er með einni snertingu, viðheldur sínum sérstöku einkennum.

Fullkomin notagildi
Tvöföld fagmennska einkennir X4 kaffivélina og mætir hún bæði þörfum þess sem gengur um vélina og þeim sem drekkur kaffið úr henni. 3.5” snertiskjár og skýrir takkar framan á vél tryggja þægilegan aðgang að dásamlegum heimi kaffinautnar. Hvað varðar notkun, vekja hönnun íhluta og möguleikar á læsingum athygli. Mögulegt er að verja kaffivélina gegn utanaðkomandi áhrifum með því að læsa vatnstanki og baunatanki, á sama tíma og vel hannaðir hlutar hennar, eins og affallsbakki og tankur fyrir kaffikorg, auðvelda meðhöndlun við daglega notkun.

Tímalaust professional útlit
X4 endurspeglar klassíska JURA hönnun, með sínum beinu línum og dökka stáli. Kaffivélin er sannkallað augnayndi og passar jafn vel inn í stílhreint umhverfi sem og á borð fjölfarins veitingahúss. Hönnun X4 lýsir sér best í fullkomnu jafnvægi á milli fagurfræði og virkni.

Jafn einstök og þínar þarfir eru
Mögulegt er að tengja X4 við greiðslukerfi sem eru sérstaklega hannað fyrir JURA professional kaffivélar. Þannig er hægt að búa til klæðskerasniðna heildarlausn varðandi kaffi fyrir fjölbreyttar aðstæður.