51 drykkur – Hot, Light, Cold og Sweet
Önnur kynslóð Z10 kaffivélarinnar fagnar fjölbreytileika kaffis og býður upp á glæsilegt úrval drykkja. Fjórir heimar kaffinautnar mætast í vélinni – Hot, Cold, Light og Sweet. Kaffivélin framkallar þar af leiðandi drykki með kröftugu bragði, ávaxtakeim, mildu bragði og undirliggjandi sætu - sannkallaða sinfóníu bragðlaukanna.
Mögulegt er að hella upp á 51 drykk með vélinni, allt frá klassískum drykkjum eins og espresso og cappuccino til vinsælla drykkja sem eru í tísku í dag. Z10 getur töfrað fram ljúffengan mocaccino og súkkulaðifroðu á augabragði með hylki fyrir súkkulaði, sem er dásamleg og einstök nýjung inn í heim kaffidrykkja með sætri mjólkurfroðu. Einnig bætist drykkurinn Long Black inn í úrval kaffidrykkja sem mögulegt er að hella upp á í þessari hágæða sjálfvirku kaffivél, en hann nýtur mikilla vinsælda í Ástralíu og Nýja-Sjálandi og kemur á óvart með sínu milda bragði.
Z10 er með P.R.G.2+ kvörn sem aðlagar mölun kaffibauna sjálfkrafa, hún hellir upp á drykki með fimm mismunandi aðferðum og er stútfull af tækninýjungum. Hægt er að nota Coffee Timer til að stilla vélina þannig að morgunkaffibollinn sé tilbúinn þegar þú vaknar, koffín stillir stjórnar því að magn koffíns sé ávalt jafnt og auk þess tryggja Milk Assistant og Quality Assistant hámarks hreinlæti með því að minna þig á að sinna reglulegu viðhaldi.
Hönnun vélarinnar einkennist af tímalausri fágun þar sem gætt hefur verið að hverju smáatriði – sannkallaður tæknisnillingur og afburðargæði fyrir ósvikna og langvarandi ánægju.
/Z10%20(EB)%20Helstu%20eiginleikar%201%20(2).jpg)
Nýstárleg og persónusniðin notendaupplifun
Z10 býður upp á notendavænt og snjallt viðmót sem gerir hverja notkun vélarinnar einstaklega ánægjulega. Notandinn getur flett í gegnum valmyndina og hina fjóra litamerktu kaffiheima á auðveldan hátt. Góð yfirsýn er yfir fjölbreytt úrval kaffidrykkja á skjánum og auðvelt fyrir notandann að finna það sem leitað er að. Mögulegt er að búa til einstaklingsbundin notendasnið og aðlaga þannig kaffiupplifun að smekk hvers og eins, en allt að fjórir notendur geta vistað sínar persónulegu stillingar í vélinni. Þeir sem vilja fínstilla kaffið enn frekar geta gert það á skjótan og einfaldan hátt með Easy Mode. Það er vart hægt að hugsa sér betri leið til að njóta uppáhalds kaffibollans.
/Z10%20(EB)%20Helstu%20eiginleikar%202%20(2).jpg)
Framúrskarandi tækni tryggir afburðargæði
Nýmalað kaffi sem er tilbúið fyrir þig til að njóta og dásamlegur kaffiilmur í morgunsárið, er lúxus sem er mögulegur með Coffee Timer. Með stillingum í gegnum J.O.E.® appið sér Coffee Timer um að uppáhalds kaffidrykkurinn þinn sé tilbúinn á réttum tíma næsta dag, nýuppáhellt og ferskt, án þess að þú þurfir að hafa af því nokkur afskipti. Koffín stillir er önnun tækninýjung sem býður upp á persónulega kaffiupplifun. Hann gerir þér kleift að stilla koffínmagn í þremur þrepum og veitir þannig nákvæma stjórn á styrkleika kaffidrykksins, svo hver bolli henti einstaklingsbundnum smekk. Z10 er einnig með notendavænum aðstoðarkerfum. Milk Assistant minnir á hreinsun mjólkurkerfis og gerir þér kleift að útbúa laktósalausa drykki eftir þörfum. Quality Assistant sér um áminningar varðandi viðhald sjálfvirku kaffivélarinnar, sem tryggir bæði dásamlegt kaffi og lengri endingu þjónustutíma vélarinnar.
/Z10%20(EB)%20Helstu%20eiginleikar%203%20(2).jpg)
Nákvæm mölun fyrir þægilega og framúrskarandi kaffiupplifun
Framúrskarandi kaffi byggir á bestu mögulegu hráefnum og fullkominni uppáhellingu. Z10 kaffivélin er með sjálfaðlagandi kvörn (P.R.G.2+) sem tryggir nákvæma uppáhellingu sérhvers drykkjar, allt frá fyrsta bolla. P.R.G.2+ kvörnin stjórnar bæði grófleika mölunar og magni kaffis, allt í samræmi við fyrir fram skilgreindar stillingar á þeim drykk sem hellt er upp á. Kvörnin malar kaffibaunirnar fínt fyrir stutta klassíska kaffidrykki en grófara fyrir lengri drykki og kaldbruggaða drykki. Að auki býður Aroma Selection upp á möguleikann að fínstilla bragðið handvirkt eftir eigin smekk við hverja uppáhellingu sé þess óskað. Að lokinn uppáhellingu fer P.R.G.2+ kvörnin sjálfkrafa aftur í hvíldarstöðu, sem tryggir ekki aðeins jafna og samræmda mölun heldur einnig stöðug afköst og lengri endingartíma kvarnarinnar.
/Z10%20(EB)%20Helstu%20eiginleikar%204%20(2).jpg)
Glæsileg tímalaus hönnun
Vönduð klassísk hönnun einkennist af fyrsta flokks gæðum, tímalausum glæsileika og góðri virkni án málamiðlunar, en Z10 kaffivélin uppfyllir allar þessar kröfur. Fáguð hönnun vélarinnar mótast meðal annars af bogadregnum línum sem koma fram í bylgjumynstri vatnstanksins og kúpt-íhvolfri framhlið vélarinnar. Króm hlíf affallsbakkans sem bollinn stendur á undirstrikar glæsileika vélarinnar og stjórnborðið, sem er kúpt út á við, býður upp á auðvelda og þægilega notkun. Kúpt lögun 4,3” lita- og snertiskjásins veitir notandanum fullkomið sjónarhorn yfir alla valmöguleika og opnar dyrnar inn í dásamlegan heim kaffinautnar. Við nánari skoðun Z10, uppgötvar þú ástríðu fyrir hönnun í hverju smáatriði.