Miele Ryksuga Blizzard CX1 - Grá 890W

Vörunúmer: SKRF5G

  79.990 kr

Miele tæki eru með 5 ára ábyrgð – enginn auka kostnaður

Pokalaus ryksuga frá Miele með Vortex tækni sem tryggir fullkominn aðskilnað á milli grófs og fíns ryks. Grófa rykið lendir inni í gagnsæum tanki en fína rykið endar inni í öðrum tanki með filter. Innbyggður Hygiene lifetime filter skilar að lokum hámarks loftgæðum í útblástri frá ryksugunni. Ryksugan er með einstaklega þægilegum hjólabúnaði, stórum 11 metra vinnuradíus og snúran dregst öll inn í einu þegar ýtt er á fótstigsrofa. Húsgagnabursti og kverkaspíss eru innfelldir í ryksuguna og því alltaf við höndina á meðan ryksugað er.

 

Vortex tækni

Mjög öflugt gegnumstreymi á lofti skilar bestu mögulegu ryksugun

Vortex tæknin myndar öflugt gegnumstreymi lofts sem nær yfir 100 km/klst. Samspil þessa öfluga loftflæðis og sérhannaðs loftþétts ryksuguhauss skilar sér í fyrsta flokks árangri við þrif. Tæknin tryggir fullkominn aðskilnað á milli grófs og fíns ryks. Grófa rykið lendir inni í gagnsæum tanki og fína rykið endar inni í öðrum tanki með filter fyrir fínt ryk. 

 

 

Þrifaleg tæming

Aðskilnaður grófra óhreininda og fíns ryks fyrir þrifalega tæmingu

Vortex tæknin myndar öflugt gegnumstreymi lofts og tryggir fullkominn aðskilnað grófra óhreininda og fíns ryks sem enda í sitt hvorum tankinum. Tankarnir eru tæmdir á þrifalegan hátt og í sitt hvoru lagi. Þar af leiðandi fer algjört lágmarks ryk á hreyfingu við tæmingu.

 

 

ComfortClean

Sjálfhreinsun filters fyrir fínt ryk

Sérstakir skynjarar mæla loftstreymi um GORE® CleanStream® filter fyrir fínt ryk og virkja ComfortClean sjálfhreinsun eftir þörfum. Ryksugan stoppar í 20 sek á meðan á sjálfhreinsun stendur. ComfortClean sjálfhreinsun tryggir jöfn og öflug afköst ryksugunnar við þrif, en hreinsunarferlið er einnig mögulegt að virkja handvirkt. 

 

 

Comfort stálrör úr ryðfríu stáli 

Fullkomin vinnuhæð fyrir hvern og einn notanda

Þú getur stillt Compact stálrörið þannig að ryksugan sé nákvæmlega í þeirri vinnuhæð sem þér hentar. Þægilegt er að stytta og lengja stálrörið og það læsist á öruggan hátt með greinilegum smelli í þeirri hæðarstillingu sem valin er. Stækkun stálrörsins eykur magn loftflæðis um ryksuguna og styður þar með við frábær þrif. Gúmmí lag sem er á efri enda Comfort compact stálrörsins er mjög praktískt, rörið rennur t.d. ekki niður ef því er hallað upp að vegg.

 

 

Sjálfvirk upprúllun rafmagnssnúru með einni snertingu

Án allra óþæginda sem fylgja því að grúfa yfir ryksugunni

Auðvelt er að rúlla rafmagnssnúru ryksugunnar upp með fótstigsrofa og óþarfi að grúfa yfir henni. Ekki er þörf á að halda inni fótstigsrofanum, heldur er nóg að stíga einu sinni á hann til þess að rúlla allri rafmagnssnúru ryksugunnar upp.

 

 

 

 

Vinnuradíus

Ryksuga fyrir stóra gólffleti

Rafmagnssnúran, Comfort stálrörið og barkinn mynda vinnuradíus ryksugunnar og er hann sérstaklega stór. Ryksugun á stórum herbergjum með stórum gólfflötum er þar af leiðandi auðveld og þægileg þar sem óþarfi er að skipta mörgum sinnum á milli innstungna.

 

 

Festing fyrir ryksugurör þegar gera þarf hlé á ryksugun

Auðvelt í notkun og óþarfi að grúfa yfir ryksugunni 

Ryksugan er með festingu fyrir ryksugurör á hliðinni. Ryksuguhausnum er einfaldlega krækt í festinguna, stálrörið er þar í öruggri stöðu og tilbúið til notkunar aftur hvenær sem er.

Leiðbeiningabæklingur

Hönnun og útlit

LiturGrár
HönnunRyksuga án poka
VörulínaBlizzard CX1
MótorPowerLine

Tækni

Vortex tækni

Þægindi notanda

StjórnborðSnúningsrofi
Fjöldi sogkraftsstillinga4 stillingar
Gerð handfangsErgonomic handfang
Silence System
SogrörComfort telescopic sogrör úr ryðfríu stáli
Festing fyrir ryksugurör á meðan ryksuga er í notkun
Festing fyrir ryksugurör á meðan ryksuga er í geymslu
Sjálfvirk upprúllun rafmangssnúru

Hreyfanleiki

Mjúk gúmmíhjól með stálöxli
4 hjól sem snúast í 360°
Vinnuradíus
11,0 m
Lengd rafmagnssnúru7,5 m

Filterar, ryksugupokar og ryksugutankar

ÚtblástursfilterHygiene lifetime Filter
Ryksuga aðskilur fínt ryk frá grófu ryki
Rúmtak tanks fyrir gróft ryk2,0 L
Filter fyrir fínt ryk
ComfortClean

Sjálfbærni og umhverfið

Orkunotkun í W890 W
Hljóðstyrkur76 dB (A) re 1 pW

Öryggi

Læsingar á milli handfangs, ryksugurörs & ryksuguhauss

Tæknilegar upplýsingar

Hæð31,0 cm
Breidd51,5 cm
Þyngd8,4 kg

Fylgihlutir

Sett af 3 ryksuguburstumHúsgagnabursti og kverkaspíss innbyggð í ryksugunni. Afþurrkunarbursti laus.
Áklæðabursti
Kverkaspíss
Húsgagnabursti með gervihárum
Ryksuguhaus SBD 660-3
Ryksuguhaus SBB 300-3

Tengdar vörur