Miele tæki eru með 5 ára ábyrgð – enginn auka kostnaður
Snúrulaus skaftryksuga frá Miele með öflugri Vortex tækni. Mögulegt er að breyta samsetningu Duoflex ryksugunnar eftir þörfum og er hún í raun 2 tæki í 1. Skaftryksugan er jafn öflug og hefðbundnar ryksugur, hún er með Li-ion rafhlöðu og samfelldan gangtíma allt að 55 mínútum. Útblástursfilter tryggir heilnæmt andrúmsloft og breiður rafmagnsryksuguhaus hentar fyrir allar gerðir gólfefna.

Löng ending rafhlöðu fyrir daglega notkun
Gangtími
Dagleg þrif verða áreynslulaus þökk sé afkastamikilli Lithium-ion rafhlöðu. Gangtími er allt að 55 mínútur á MIN stillingu með PowerUnit eingöngu án rafmagnsryksuguhauss. Á MAX stillingu með rafmagnsryksuguhaus nær Duoflex HX1 gangtíma sem er um það bil 12 mínútur á hörðu gólfefni. Tilvalið fyrir svæði sem eru allt að 60 m² að stærð.

Fyrir hvaða gólfefni sem er: hagnýtt, snjallt, skilvirkt
MultiFloor rafmagnsryksuguhaus
Þökk sé nýstárlegri tækni greinir snjalli MultiFloor rafmagnsryksuguhausinn sjálfkrafa gerð gólfefnis og aðlagar hraða rúlluburstans eftir yfirborðinu - skilvirkur sogkraftur og bestu mögulegu þrif hvar sem þú ert.

Öflugur sogkraftur
Digital Efficiency Mótor
Stöðug skilvirkni og mikill kraftur: Nýjasta tæknin á bak við Digital Efficiency Mótorinn tryggir framúrskarandi sogkraft með lágmarks orkunotkun. Þægilega léttur mótorinn mun heilla þig með afburða þrifum á öllum gerðum gólfefna.

Sveigjanleiki í daglegri notkun
Sveigjanleg notkun
Mögulegt er að aðlaga Miele Duoflex ryksuguna eftir þörfum með að nota fjölbreytt úrval fylgihluta og með því að breyta samsetningu ryksugunnar. Notaðu Duoflex með rafmagnsryksuguhaus til að ryksuga gólfið eða PowerUnit með sogröri til þess að þrífa loftið. Einnig er hægt að nota PowerUnit eitt og sér til dæmis til þess að þrífa húsgögn. Duoflex býður upp á lausn á hvaða áskorun sem er.

Tæming með einum takka
Auðvelt í þrifum
Afar einfalt er að tæma tankinn fyrir grófa rykið, þökk sé Click2open. Eina sem þarf að gera er að ýta á takka og tankurinn tæmist neðan frá ofan í fötu sem sem sett er undir. Hreinlæti er sérstaklega mikið vegna þess að engin snerting á sér stað við rykið á meðan á tæmingu stendur.

Óaðfinnanleg samþætting við þína innanhússhönnun
Hönnun fyrir lífið
Duoflex HX1 er ekki bara öflug ryksuga, hún er líka einstaklega fögur allt niður í minnstu smáatriði. Þökk sé þessari fallegu og nútímalegu hönnun er vel við hæfi að finna ryksugunni áberandi stað á heimilinu. Að finna stað til að fela ryksuguna er liðin tíð. Nútímalegir, stílhreinir litir og gæði áferðar yfirborðs gera Miele Duoflex HX1 skaftryksuguna að sannkölluðum hönnunargrip sem sómir sér vel hvar sem er á heimilinu.