Fullkomin pokaryksuga frá Miele sem tilheyrir Guard L1 vörulínunni. Ryksugan er með þægilegu Comfort 2.0 handfangi og DynamicDrive hjólabúnaði sem samanstendur af fjórum slitsterkum og endingargóðum gúmmíhjólum með dempurum og 360° hreyfanleika. Hún er bæði með fótstigsrofa til þess að auka og minnka sogkraft og fótstigsrofa fyrir snúru sem dregst öll inn í einu þegar ýtt er á hann. Þetta gerir það að verkum að óþarfi er að beygja sig mikið niður við notkun ryksugunnar sem gerir hana einstaklega þægilega í notkun. Fylgihlutir eru AirClean Plus filter og venjulegur ryksuguhaus. Húsgagnabursti fylgjir og er innbyggður í handfangið. Einnig fylgir með 2in1 bursti sem er sambyggður áklæðabursti og kverkaspíss.

Tækninýjungar leiða til meiri nákvæmni
Öflug þrif
Miele Guard ryksugan sameinar hámarks sogkraft og ótakmarkaðan notkunartíma - fullkomið fyrir stór svæði. Gagnger þrif eru tryggð með öflugri viftu, ákjósanlegri loftrás og ryksuguhaus. Ný ComfortFit tækni við festingu ryksugupoka ásamt öflugum útblástursfilterum, skila sér í fyrsta flokks frammistöðu og hreinlæti - og þú nýtur góðs af áreiðanlegum og öflugum þrifum.

“Made in Germany” táknar áreiðanleika sem þú getur treyst
Gæði
“Made in Germany” er ímynd yfir fyrsta flokks verkfræði og yfirburði. Mikil gæði, áreiðanleiki og góð ending einkenna allar Miele vörur. Til þess að tryggja það að ryksugurnar uppfylli gæðakröfur, eru þær prófaðar fyrir 20 ára endingu að jafnaði* sem þýðir að þú getur treyst afkastagetunni.
* Á meðan á þróunarfasa Guard ryksugulínunnar stóð, prófaði Miele módel og lykilíhluti á mismunandi aflstillingum fyrir 750 klukkutíma notkun (=37,5 tímar á ári). Meira: miele.com/20years

Hámarks hreinlæti
Kerfi filtera með ComfortFit
Tækninýjungar bæði á filterum og ryksugupokum gera þér kleift að njóta alhliða hreinlætis á heimilinu - þar sem afköst filtrunar eru 99,99% *. ComfortFit gerir það að verkum að sérstaklega auðvelt er að setja ryksugupoka í vélina. Örugg lokun á milli ryksugupoka og ryksugunnar sjálfrar tryggir að ekkert ryk sleppur fram hjá og að hægt sé að skipta um ryksugupoka á einstaklega hreinlátan hátt. Auk þess eru nýju ryksugupokarnir gerðir úr meira en 80% endurunnu efni.
* Samkvæmt IEC 62885-2 við notkun Miele tækis með AirClean filter

Engin þörf á að beygja sig
Sjálfvirk upprúllun rafmagnssnúru með einni snertingu
Auðvelt er að rúlla rafmagnssnúru ryksugunnar upp með fótstigsrofa og óþarfi að grúfa yfir henni. Ekki er þörf á að halda inni fótstigsrofanum, heldur er nóg að stíga einu sinni á hann til þess að rúlla allri rafmagnssnúru ryksugunnar upp.

Þægilegt og auðvelt í notkun
Comfort handfang
Comfort handfang með innbyggðum afþurrkunarbursta býður upp á einstaklega hraðvirk og auðveld þrif ef minniháttar óhöpp koma upp.

Fjölhæf þrif með einu verkfæri
Innbyggður 2-in-1 áklæðabursti og kverkastútur
Miele Guard L1 er með innbyggðum 2-in-1 stúti sem gerir þér kleift að skipta hratt og auðveldlega á milli verkefna. Stúturinn sameinar sérstaklega breiðan áklæðabursta sem hentar fyrir þrif á áklæðum og kverkastút sem er hannaður fyrir þrif á svæðum sem erfitt er að ná til. Stúturinn er staðsettur í aftari hluta ryksugunnar og því alltaf við höndina.

Sogkraftur stilltur á þægilegan hátt
Plús-/mínus - Fótstýring
Njóttu hámarks þæginda við notkun með þægilegri fótstýringu. Hún gerir þér kleift að stjórna sogkraftinum með fætinum án þess að þurfa að beygja þig niður. Grafísk tákn auðvelda þér að velja rétt afl fyrir svæðið sem þú ætlar að ryksuga.

Sérstaklega flatur og fjölhæfur
AllFloor ryksuguhaus
Miele AllFloor ryksuguhausinn er skilvirk lausn fyrir dagleg þrif. Sérstök hönnun hans auðveldar skiptingar á milli mismunandi gerða gólfefna vegna þess að óþarfi er að skipta á milli stillinga. Hann er mildur á hörðum gólfefnum en býður einnig upp á nægilegan sogkraft á teppum. Auk þess er AllFloor ryksuguhausinn hannaður þannig að hann er sérstaklega flatur sem er til dæmis fullkomið til þess að ryksuga undir húsgögnum.

Fjölhæfur ryksuguhaus fyrir hvers kyns verkefni
AllTeQ alhliða ryksuguhaus
Auðvelt er að stilla ryksuguhausinn eftir því hvers konar gólfefni er verið að ryksuga sem gerir ryksugun einstaklega áreynslulausa og tryggir nútímaleg hönnun hans frábært sog bæði á teppum og hörðum gólfum. Stórt gúmmíhjól og stillanlegir burstar sem ganga inn og út úr hausnum að neðanverðu koma í veg fyrir rispur á hörðum gólfefnum og fjarlægja auk þess hár af gólfi á skilvirkan hátt.

Viðeigandi ryksugupokar
HyClean Pure TU
HyClean Pure TU ryksugupokarnir eru hannaðir til að passa fullkomlega í Guard L1 ryksuguna og tryggja framúrskarandi afköst og skilvirkni. ComfortFit tækni tryggir örugga lokun milli ryksugupoka og ryksugunnar sjálfrar þegar ryksugupokinn er festur í vélina. Tæknin sér til þess að allt ryk haldist inni í kerfinu sem aftur tryggir hámarks filtrun.

AirClean Plus filter fyrir framúrskarandi loft innandyra
AirClean Plus filter
AirClean Plus filterinn fangar ryk örugglega og tryggir skilvirka síun fyrir sérstaklega hreint loft innandyra.