Miele Ryksuga Guard L1 - Titanium Pearl

Vörunúmer: SUMF0P

  129.990 kr

Fullkomnasta pokaryksugan frá Miele sem tilheyrir Guard L1 vörulínunni. Ryksugan er með sjálfvirku ryksugukerfi sem aðlagar sogkraft sjálfkrafa eftir því hvernig yfirborð ryksuguflatar er. Einnig er hægt að handstúyra sogkrafti. XL parketbursti með mjúkum hárum fylgir aukalega og DynamicDrive hjólabúnaðurinn samanstendur af fjórum slitsterkum og endingargóðum gúmmíhjólum með dempurum og 360° hreyfanleika. Ryksugan er bæði með handstýringu í Comfort handfangi til þess að auka og minnka sogkraft og fótstigsrofa fyrir snúru sem dregst öll inn í einu þegar ýtt er á hann. Þetta gerir það að verkum að óþarfi er að beygja sig mikið niður við notkun ryksugunnar sem gerir hana einstaklega þægilega í notkun. Fylgihlutir eru, auk parketbursta, HEPA filter og venjulegur ryksuguhaus. Húsgagnabursti fylgjir og er innbyggður í handfangið. Einnig fylgir með 2in1 bursti sem er sambyggður áklæðabursti og kverkaspíss.

 

Tækninýjungar leiða til meiri nákvæmni

Öflug þrif 

Miele Guard ryksugan sameinar hámarks sogkraft og ótakmarkaðan notkunartíma - fullkomið fyrir stór svæði. Gagnger þrif eru tryggð með öflugri viftu, ákjósanlegri loftrás og ryksuguhaus. Ný ComfortFit tækni við festingu ryksugupoka ásamt öflugum útblástursfilterum, skila sér í fyrsta flokks frammistöðu og hreinlæti - og þú nýtur góðs af áreiðanlegum og öflugum þrifum.

 

 

“Made in Germany” táknar áreiðanleika sem þú getur treyst

Gæði

“Made in Germany” er ímynd yfir fyrsta flokks verkfræði og yfirburði. Mikil gæði, áreiðanleiki og góð ending einkenna allar Miele vörur. Til þess að tryggja það að ryksugurnar uppfylli gæðakröfur, eru þær prófaðar fyrir 20 ára endingu að jafnaði* sem þýðir að þú getur treyst afkastagetunni.

* Á meðan á þróunarfasa Guard ryksugulínunnar stóð, prófaði Miele módel og lykilíhluti á mismunandi aflstillingum fyrir 750 klukkutíma notkun (=37,5 tímar á ári). Meira: miele.com/20years

 

 

Hámarks hreinlæti 

Kerfi filtera með ComfortFit

Tækninýjungar bæði á filterum og ryksugupokum gera þér kleift að njóta alhliða hreinlætis á heimilinu - þar sem afköst filtrunar eru 99,99% *. ComfortFit gerir það að verkum að sérstaklega auðvelt er að setja ryksugupoka í vélina. Örugg lokun á milli ryksugupoka og ryksugunnar sjálfrar tryggir að ekkert ryk sleppur fram hjá og að hægt sé að skipta um ryksugupoka á einstaklega hreinlátan hátt. Auk þess eru nýju ryksugupokarnir gerðir úr meira en 80% endurunnu efni.

* Samkvæmt IEC 62885-2 við notkun Miele tækis með AirClean filter 

 

 

Engin þörf á að beygja sig

Sjálfvirk upprúllun rafmagnssnúru með einni snertingu

Auðvelt er að rúlla rafmagnssnúru ryksugunnar upp með fótstigsrofa og óþarfi að grúfa yfir henni. Ekki er þörf á að halda inni fótstigsrofanum, heldur er nóg að stíga einu sinni á hann til þess að rúlla allri rafmagnssnúru ryksugunnar upp.

 

 

Þægilegt og auðvelt í notkun

Comfort handfang með stjórntökkum

Mögulegt er að stjórna ryksugunni með Comfort handfanginu. Útvarpsbylgjur tengja einföldu stjórntakkana á handfanginu við ryksuguna og gera þér kleift að kveika/slökkva á henni og velja viðeigandi sogkraft. Lögun handfangsins gerir það einstaklega þægilegt í notkun og auk þess er innbyggður afþurrkunarbursti í handfanginu sem gerir þrif á viðkvæmum yfirborðum einstaklega hraðvirk og auðveld.

 

 

Fjölhæf þrif með einu verkfæri 

Innbyggður 2-in-1 áklæðabursti og kverkastútur

Miele Guard L1 er með innbyggðum 2-in-1 stúti sem gerir þér kleift að skipta hratt og auðveldlega á milli verkefna. Stúturinn sameinar sérstaklega breiðan áklæðabursta sem hentar fyrir þrif á áklæðum og kverkastút sem er hannaður fyrir þrif á svæðum sem erfitt er að ná til. Stúturinn er staðsettur í aftari hluta ryksugunnar og því alltaf við höndina.

 

 

Sogkraftur stilltur á þægilegan hátt

Plús-/mínus - Fótstýring

Njóttu hámarks þæginda við notkun með þægilegri fótstýringu. Hún gerir þér kleift að stjórna sogkraftinum með fætinum án þess að þurfa að beygja þig niður. Grafísk tákn auðvelda þér að velja rétt afl fyrir svæðið sem þú ætlar að ryksuga.

 

 

Snjöll þrif

Sjálfvirkt kerfi

Sjálfvirka kerfið sameinar snjalltækni og hámarks þægindi. Ryksugan skynjar gerð gólfflatar sjálfkrafa og aðlagar sogkraft samkvæmt því. Þetta hámarkar skilvirkni þrifa og tryggir einnig á sama tíma að þau séu framkvæmd á varkáran hátt. Auk þess sparar sjálfvirka kerfið tíma þar sem þú þarft ekki lengur að skipta á milli stillinga handvirkt.

 

 

Miele@home

Snjöll stjórnun gegnum netið

Með nýjunginni Miele@home, getur þú fullnýtt þér alla möguleika Miele tækisins þíns og snjallvætt hversdagslífið enn frekar. Öllum Miele snjalltækjum er hægt að stjórna á þægilegan og öruggan hátt í gegnum netið. Notkun fer fram í gegnum WiFi router og Miele skýjið.

 

 

Fer vel með gólfefni og sparar tíma

Parket Twister XL ryksuguhaus 

Miele Parket Twister XL ryksuguhaus er fullkominn fyrir áreynslulaus þrif á viðkvæmum hörðum gólfefnum. Ryksuguhausinn er mjög meðfærilegur og sveigjanlegur og hann er með mjúkum, náttúrulegum hárum sem renna yfir gólfefnið án þess að rispa það. Auk þess næst allt að 25% tímasparnaður við þrif vegna þess að ryksuguhausinn er sérstaklega breiður eða 41 cm.

 

 

Fjölhæfur ryksuguhaus fyrir hvers kyns verkefni

AllTeQ alhliða ryksuguhaus

Auðvelt er að stilla ryksuguhausinn eftir því hvers konar gólfefni er verið að ryksuga sem gerir ryksugun einstaklega áreynslulausa og tryggir nútímaleg hönnun hans frábært sog bæði á teppum og hörðum gólfum. Stórt gúmmíhjól og stillanlegir burstar sem ganga inn og út úr hausnum að neðanverðu koma í veg fyrir rispur á hörðum gólfefnum og fjarlægja auk þess hár af gólfi á skilvirkan hátt.

 

 

Viðeigandi ryksugupokar

HyClean Pure TU

HyClean Pure TU ryksugupokarnir eru hannaðir til að passa fullkomlega í Guard L1 ryksuguna og tryggja framúrskarandi afköst og skilvirkni. ComfortFit tækni tryggir örugga lokun milli ryksugupoka og ryksugunnar sjálfrar þegar ryksugupokinn er festur í vélina. Tæknin sér til þess að allt ryk haldist inni í kerfinu sem aftur tryggir hámarks filtrun.

 

 

Filter sem hentar fyrir fólk með ofnæmi

HEPA AirClean filter

Filterar Guard ryksugunnar fanga allt að 99,999% rykagna og er útblástur hennar þar af leiðandi jafnvel hreinni en herbergisloftið. Filtrun ryksugunnar er marglaga og inniheldur HEPA filter sem fangar fínt ryk og ofnæmisvaka. Þetta gerir Guard að hinni fullkomnu ryksugu fyrir fólk sem er með ofnæmi*.

* 99.999 % samkvæmt IEC 62885-2:2021 / HEPA samkvæmt EN 1822:2019

Notendaleiðbeiningar

Hönnun og útlit

LiturTítaníum - Perluáferð
HönnunRyksuga með poka
Efni hliðarÁklæði
VörulínaGuard L1
MótorPowerLine

Þægindi notanda

StjórnborðSogkrafstýring í handfangi
Fjöldi sogkraftsstillinga4 stillingar
Upplýst stjórnborð
Já, skjár
Gerð handfangsComfort 2.0 handfang með innbyggðri stýringu á sogkrafti
SogrörÞægilegt lengjanlegt/styttanlegt úr ryðfríu stáli
Festing fyrir ryksugurör á meðan ryksuga er í notkun
Festing fyrir ryksugurör á meðan ryksuga er í geymslu1, undir henni
Sjálfvirk upprúllun rafmangssnúru

Hreyfanleiki

Mjúk gúmmíhjól með stálöxli
4 hjól sem snúast í 360°
Dynamic Drive
Vinnuradíus
12,0 m
Lengd rafmagnssnúru8,5 m

Filterar, ryksugupokar og ryksugutankar

Gerð ryksugupokaHyClean Pure TU
Rúmtak ryksugupoka3,5 L
Loftflæðismælir
ÚtblástursfilterHEPA AirClean filter
Gaumljós fyrir útblástursfilter
Mótorfilter

Sjálfbærni og umhverfið

Orkunotkun í W890 W
Hljóðstyrkur74 dB (A) re 1 pW

Öryggi

Læsingar á milli handfangs, ryksugurörs & ryksuguhauss
Ryksuga staðsetur ryksugupoka sjálfvirkt
Mjúkur borði umhverfis ryksugu sem verndar húsgögn

Tæknilegar upplýsingar

Hæð23,9 cm
Breidd50,0 cm
Dýpt28,8 cm
Þyngd6,5 kg

Fylgihlutir

Áklæðabursti
Kverkaspíss
Húsgagnabursti með gervihárum
ÚtblástursfilterHEPA AirClean filter
Ryksuguhaus SBD 365-3
Ryksuguhaus SBB 400-3

Tengdar vörur