Miele Ryksuga Guard M1 - Terra rauð

Vörunúmer: SVWF6R

  59.990 kr
  Vara væntanleg

Fáðu tölvupóst þegar varan er komin aftur á lager

Ryksuga með poka sem tilheyrir Guard M1 vörulínu Miele. Sogkraftsstillingar eru fjórar og skipt er á milli þeirra með þrýstirofa, en auk þess er ryksugan með fótstigsrofa fyrir snúru sem dregst öll inn í einu þegar ýtt er á hann. Þetta gerir það að verkum að óþarfi er að beygja sig mikið niður við notkun ryksugunnar sem gerir hana einstaklega þægilega í notkun. Hjólin eru þrjú og með 360° hreyfanleika, þar af leiðandi er mjög auðvelt að draga ryksuguna eftir gólfinu og ryksuguhausinn hentar fyrir allar gerðir gólfefna. Áklæðabursti, húsgagnabursti og kverkaspíss fylgja einnig með og eru fylgihlutirnir staðsettir inni í ryksugunni.

 

Tækninýjungar leiða til meiri nákvæmni

Öflug þrif 

Miele Guard ryksugan sameinar hámarks sogkraft og ótakmarkaðan notkunartíma - fullkomið fyrir stór svæði. Gagnger þrif eru tryggð með öflugri viftu, ákjósanlegri loftrás og ryksuguhaus. Ný ComfortFit tækni við festingu ryksugupoka ásamt öflugum útblástursfilterum, skila sér í fyrsta flokks frammistöðu og hreinlæti - og þú nýtur góðs af áreiðanlegum og öflugum þrifum.

 

 

“Made in Germany” táknar áreiðanleika sem þú getur treyst

Gæði

“Made in Germany” er ímynd yfir fyrsta flokks verkfræði og yfirburði. Mikil gæði, áreiðanleiki og góð ending einkenna allar Miele vörur. Til þess að tryggja það að ryksugurnar uppfylli gæðakröfur, eru þær prófaðar fyrir 20 ára endingu að jafnaði* sem þýðir að þú getur treyst afkastagetunni.

* Á meðan á þróunarfasa Guard ryksugulínunnar stóð, prófaði Miele módel og lykilíhluti á mismunandi aflstillingum fyrir 750 klukkutíma notkun (=37,5 tímar á ári). Meira: miele.com/20years

 

 

Hámarks hreinlæti 

Kerfi filtera með ComfortFit

Tækninýjungar bæði á filterum og ryksugupokum gera þér kleift að njóta alhliða hreinlætis á heimilinu - þar sem afköst filtrunar eru 99,99% *. ComfortFit gerir það að verkum að sérstaklega auðvelt er að setja ryksugupoka í vélina. Örugg lokun á milli ryksugupoka og ryksugunnar sjálfrar tryggir að ekkert ryk sleppur fram hjá og að hægt sé að skipta um ryksugupoka á einstaklega hreinlátan hátt. Auk þess eru nýju ryksugupokarnir gerðir úr meira en 80% endurunnu efni.

* Samkvæmt IEC 62885-2 við notkun Miele tækis með AirClean filter 

 

 

Engin þörf á að beygja sig

Sjálfvirk upprúllun rafmagnssnúru með einni snertingu

Auðvelt er að rúlla rafmagnssnúru ryksugunnar upp með fótstigsrofa og óþarfi að grúfa yfir henni. Ekki er þörf á að halda inni fótstigsrofanum, heldur er nóg að stíga einu sinni á hann til þess að rúlla allri rafmagnssnúru ryksugunnar upp.

 

 

Rétt stilling fyrir besta mögulega árangur

Sogkraftur stilltur með einföldum hætti

Veldu rétta stillingu fyrir viðkomandi þrif svo þú getir verið viss um fullkomnar niðurstöður í hvert skipti. Hægt er að velja fjórar mismunandi aflstillingar með einum takka: gluggatjöld og textíl, loðin teppi og lausar mottur, snögg flatofin teppi og hörð gólfefni. Sogkrafturinn aðlagast strax viðkomandi yfirborði fyrir sérhæfð þrif.

 

 

Fjölhæfur ryksuguhaus fyrir hvers kyns verkefni

AllTeQ alhliða ryksuguhaus

Auðvelt er að stilla ryksuguhausinn eftir því hvers konar gólfefni er verið að ryksuga sem gerir ryksugun einstaklega áreynslulausa og tryggir nútímaleg hönnun hans frábært sog bæði á teppum og hörðum gólfum. Stórt gúmmíhjól og stillanlegir burstar sem ganga inn og út úr hausnum að neðanverðu koma í veg fyrir rispur á hörðum gólfefnum og fjarlægja auk þess hár af gólfi á skilvirkan hátt.

 

 

Viðeigandi ryksugupokar

HyClean Pure CO

HyClean Pure CO ryksugupokarnir eru hannaðir til að passa fullkomlega í Guard M1 ryksuguna og tryggja framúrskarandi afköst og skilvirkni. ComfortFit tækni tryggir örugga lokun milli ryksugupoka og ryksugunnar sjálfrar þegar ryksugupokinn er festur í vélina. Tæknin sér til þess að allt ryk haldist inni í kerfinu sem aftur tryggir hámarks filtrun.ryggir hámarks filtrun.

Notendaleiðbeiningar

Hönnun og útlit

LiturTerra rauður
HönnunRyksuga með poka
VörulínaGuard M1
MótorPowerLine

Þægindi notanda

StjórnborðÞrýstitakki
Fjöldi sogkraftsstillinga4 stillingar
Gerð handfangsKlassískt Miele ryksuguhandfang
SogrörÞægilegt lengjanlegt/styttanlegt úr ryðfríu stáli
Festing fyrir ryksugurör á meðan ryksuga er í notkun
Festing fyrir ryksugurör á meðan ryksuga er í geymslu2, á báðum hliðum
Sjálfvirk upprúllun rafmangssnúru

Hreyfanleiki

Mjúk gúmmíhjól með stálöxli
3 hjól sem snúast í 360°
Vinnuradíus
11,0 m
Lengd rafmagnssnúru7,5 m

Filterar, ryksugupokar og ryksugutankar

Gerð ryksugupokaHyClean Pure CO
Rúmtak ryksugupoka4,5 L
Loftflæðismælir
ÚtblástursfilterAirClean filter
Mótorfilter

Sjálfbærni og umhverfið

Orkunotkun í W890 W
Hljóðstyrkur77 dB (A) re 1 pW

Öryggi

Læsingar á milli handfangs, ryksugurörs & ryksuguhauss
Ryksuga staðsetur ryksugupoka sjálfvirkt
Mjúkur borði umhverfis ryksugu sem verndar húsgögn

Tæknilegar upplýsingar

Hæð22,7 cm
Breidd49,6 cm
Dýpt28,4 cm
Þyngd6,7 kg

Fylgihlutir

Áklæðabursti
Kverkaspíss
Húsgagnabursti með gervihárum
ÚtblástursfilterAirClean filter
Ryksuguhaus SBD 365-3

Tengdar vörur