Miele Ryksuga Guard S1 Parquet - Brilliant hvítur

Vörunúmer: STRF0H

  62.990 kr
  Vara væntanleg

Fáðu tölvupóst þegar varan er komin aftur á lager

Ryksuga með poka sem tilheyrir Guard S1 vörulínu Miele. Sogkraftsstillingar eru fjórar og skipt er á milli þeirra með snúningsrofa. Hún er einstaklega fyrirferðarlítil, bæði létt og nett, aðeins H: 230 mm x B: 425 mm x D:  245 mm og 6,0 kg með öllum fylgihlutum. Hjólabúnaðurinn er með 360° hreyfanleika og þar af leiðandi er mjög auðvelt að draga ryksuguna eftir gólfinu. Parketbursti með mjúkum hárum fylgir aukalega en hann er fullkominn fyrir parket og hörð gólf. Einnig fylgir löng sveigjanleg kverkaspíss sem hentar vel til þess að ná til erfiðra staða, svo sem inn í örmjó skot og sprungur. Hefðbundnu stútarnir, áklæðabursti, húsgagnabursti og kverkaspíss eru utanáliggjandi og mögulegt að festa þá á ryksuguna.

 

Tækninýjungar leiða til meiri nákvæmni

Öflug þrif 

Miele Guard ryksugan sameinar hámarks sogkraft og ótakmarkaðan notkunartíma - fullkomið fyrir stór svæði. Gagnger þrif eru tryggð með öflugri viftu, ákjósanlegri loftrás og ryksuguhaus. Ný ComfortFit tækni við festingu ryksugupoka ásamt öflugum útblástursfilterum, skila sér í fyrsta flokks frammistöðu og hreinlæti - og þú nýtur góðs af áreiðanlegum og öflugum þrifum.

 

 

Hámarks hreinlæti 

Kerfi filtera með ComfortFit

Tækninýjungar bæði á filterum og ryksugupokum gera þér kleift að njóta alhliða hreinlætis á heimilinu - þar sem afköst filtrunar eru 99,99% *. ComfortFit gerir það að verkum að sérstaklega auðvelt er að setja ryksugupoka í vélina. Örugg lokun á milli ryksugupoka og ryksugunnar sjálfrar tryggir að ekkert ryk sleppur fram hjá og að hægt sé að skipta um ryksugupoka á einstaklega hreinlátan hátt. Auk þess eru nýju ryksugupokarnir gerðir úr meira en 80% endurunnu efni.

* Samkvæmt IEC 62885-2 við notkun Miele tækis með AirClean filter 

 

 

Fyrirferðarlítil og létt

Nett hönnun

Ryksugan er tilvalin fyrir minni heimili og er einstaklega auðveld í notkun og meðförum vegna þess að hún er bæði fyrirferðalítil og aðeins 5,6 kg. Nett stærð ryksugunnar tryggir auk þess að auðvelt er að geyma hana í litlum rýmum og spara með því dýrmætt pláss.

 
 
 
 
Ákjósanlegt afl með einni snertingu
Valrofi
Sogkraftur ryksugunnar er stilltur rafrænt með einföldum snúningsrofa. Merkingar fyrir mismunandi notkun hjálpa til við að velja besta aflsstigið.
 
 
 

Fullkomið fyrir staði sem erfitt er að komast að

Sveigjanlegur XL kverkastútur

XL kverkastúturinn gerir þér kleift að hreinsa djúp op og mjóar sprungur. Hann er sérstaklega langur eða 55 cm sem gerir þér kleift að ná til erfiðra staða og fjarlægja óhreinindi á auðveldan hátt. Kverkastúturinn passar á allar Miele ryksugur og eykur þægindi við þrif.

 
 

Fer vel með gólfefni 

Parket Twister ryksuguhaus 

Miele Parket Twister ryksuguhaus er fullkominn fyrir áreynslulaus þrif á viðkvæmum hörðum gólfefnum. Ryksuguhausinn er mjög meðfærilegur og sveigjanlegur og hann er með mjúkum, náttúrulegum hárum sem renna yfir gólfefnið án þess að rispa það.

 
 
 

Fljótleg þrif á hvers kyns gólfefnum

FiberTeQ alhliða ryksuguhaus

Hágæða alhliða FiberTeQ gólfhausinn gerir þér kleift að ryksuga öll gólfefni á þægilegan og varlegan máta. Hann er praktískur, rennur mjuklega og áreynslulaust yfir bæði hörð gólf og teppi, og fjarlægir hár á gagngeran hátt. Gólfefni sem eru viðkvæm fyrir rispum eru varin og hreinsuð varlega.

 

 

Viðeigandi ryksugupokar

HyClean Pure TU

HyClean Pure TU ryksugupokarnir eru hannaðir til að passa fullkomlega í Guard L1 ryksuguna og tryggja framúrskarandi afköst og skilvirkni. ComfortFit tækni tryggir örugga lokun milli ryksugupoka og ryksugunnar sjálfrar þegar ryksugupokinn er festur í vélina. Tæknin sér til þess að allt ryk haldist inni í kerfinu sem aftur tryggir hámarks filtrun.

 

 

AirClean Plus filter fyrir framúrskarandi loft innandyra

AirClean Plus filter

AirClean Plus filterinn fangar ryk örugglega og tryggir skilvirka síun fyrir sérstaklega hreint loft innandyra.

Notendaleiðbeiningar

Hönnun og útlit

LiturBrilliant hvítur
HönnunRyksuga með poka
VörulínaGuard S1
MótorPowerLine

Þægindi notanda

StjórnborðSnúningsrofi
Fjöldi sogkraftsstillinga4 stillingar
Gerð handfangsKlassískt Miele ryksuguhandfang
SogrörÞægilegt lengjanlegt/styttanlegt úr ryðfríu stáli
Festing fyrir ryksugurör á meðan ryksuga er í notkun
Festing fyrir ryksugurör á meðan ryksuga er í geymslu2, á báðum hliðum

Hreyfanleiki

Mjúk gúmmíhjól með stálöxli
3 hjól sem snúast í 360°
Vinnuradíus
10,0 m
Lengd rafmagnssnúru7,5 m

Filterar, ryksugupokar og ryksugutankar

Gerð ryksugupokaHyClean Pure TU
Rúmtak ryksugupoka3,5 L
Loftflæðismælir
ÚtblástursfilterAirClean Plus filter
Mótorfilter

Sjálfbærni og umhverfið

Orkunotkun í W890 W
Hljóðstyrkur76 dB (A) re 1 pW

Öryggi

Læsingar á milli handfangs, ryksugurörs & ryksuguhauss
Ryksuga staðsetur ryksugupoka sjálfvirkt
Mjúkur borði umhverfis ryksugu sem verndar húsgögn

Tæknilegar upplýsingar

Hæð23,0 cm
Breidd42,5 cm
Dýpt42,5 cm
Þyngd6,0 kg

Fylgihlutir

Áklæðabursti
Kverkaspíss
Húsgagnabursti með gervihárum
ÚtblástursfilterAirClean Plus filter
Ryksuguhaus SBD 355-3
Ryksuguhaus SBB 300-3
Sveigjanleg kverkaspíss SFD 20

Tengdar vörur