Miele tæki eru með 5 ára ábyrgð – enginn auka kostnaður
Snúrulaus skaftryksuga frá Miele með öflugri Vortex tækni og auka ryksugubursta sem hentar fullkomlega á dýrahár. Mögulegt er að breyta samsetningu Triflex ryksugunnar eftir þörfum og er hún í raun 3 tæki í 1. Skaftryksugan er jafn öflug og hefðbundnar ryksugur og veitir útskiftanleg Li-ion rafhlaðan allt að 60 mínútna samfelldan gangtíma. HEPA filter síar ofnæmisvaka úr andrúmsloftinu og breiður rafmagnsryksuguhaus með lýsingu tryggir bestu mögulegu sýn.

3 tæki í 1
Hámarks sveigjanleiki fyrir allar mögulegar aðstæður
Njóttu hámarks sveigjanleika: mögulegt er að staðsetja PowerUnit Miele Triflex skaftryksugunnar bæði uppi við topp skaftsins og einnig botn þess. Þessar mismunandi samsetningar ryksugunnar gera þér hvort tveggja kleift að ryksuga á þægilegan máta undir lág húsgögn og ryksuga stór svæði á áreynslulausan hátt. Einnig er mögulegt að nota PowerUnit stakt til dæmis til þess að ryksuga bílinn eða sófann á örskömmum tíma. Þú getur aðlagað TriFlex skaftryksuguna fullkomlega að þínum þörfum með því að breyta samsetningu hennar.

Range samsetning
Náðu til erfiðari staða
Alls konar möguleikar: með því að staðsetja PowerUnit Triflex við topp skaftsins næst hámarks sveigjanleiki sem hentar til dæmis fullkomlega ef þú þarft að ryksuga undir lág húsgögn eða að ná ryki úr loftinu. Afar auðvelt er að ná undir rúm eða skápa með skaftryksugunni í Range samsetningu – fyrir fullkomlega hreint heimili.

Comfort samsetning
Áreynslulaus þrif
Fullkomið fyrir stór svæði: með því að staðsetja PowerUnit Triflex við botn skaftsins getur þú ryksugað stór rými eða svæði á þægilegan hátt - eins og langa ganga eða rúmgóðar setustofur. Skaftryksugan er létt í hendi sem gerir það að verkum að einstaklega auðvelt er að ryksuga með henni. Auk þessa er einfalt að geyma skaftryksuguna í standandi stöðu þegar hún er í Comfort samsetningu, sem hentar vel ef þú þarft að taka þér pásu frá ryksugun inn á milli.

Compact samsetning
Einfalt í notkun
Þarftu bara að ryksuga upp smá brauðmylsnu úr sófanum eða losna við ryk úr bílsætunum? Það er einstaklega auðvelt með því að nota PowerUnit stakt í Compact samsetningu. Losaðu PowerUnit af skaftinu á einfaldan hátt og notaðu það óháð bæði skaftinu og rafmagnsryksuguhausnum. Alltaf tilbúið til notkunar – þú sparar tíma en þrífur samt á áhrifaríkan hátt.

Sveigjanleiki við hleðslu
Þægilegt og fjölbreytt
Þú getur hlaðið Miele Triflex á þægilegan hátt. Mögulegt er að hlaða skaftryksuguna í geymslustöðu á veggfestingu í þeirri samsetningu sem hentar, annað hvort með PowerUnit áföstu við topp eða botn skaftsins. Ef þú vilt ekki bora fyrir veggfestingu, getur þú einfaldlega stungið hleðslusnúrunni beint frá innstungu í rafhlöðuna sjálfa.

Veggfesting
Fullkomin geymslulausn
Þægileg veggfesting gerir þér kleift að geyma Miele Triflex skaftryksuguna á veggnum ásamt setti af þremur ryksuguburstum sem fylgja með tækinu; húsgagnabursta, áklæðabursta og kverkaspíss. Þetta sparar pláss sem þar af leiðandi er mögulegt að nýta undir aðra hluti.

HEPA lifetime filter
Andaðu léttar
Með HEPA lifetime filter getur þú fjarlægt ofnæmisvaka og búið til öruggt umhverfi innan þinna fjögurra veggja. Filterinn síar 99,999% af öllum ofnæmisvökum og öðrum örsmáum ögnum sem koma inn í ryksuguna. Agnirnar eru þannig fjarlægðar úr andrúmsloftinu og verða einstaklingar með ofnæmi þar af leiðandi síður útsettir fyrir frjókornum og almennu heimilisryki.

Twist2open
Fljótleg og örugg tæming
Er tankurinn fyrir ryk á Miele Triflex skaftryksugunni fullur? Twist2open eiginleiki gerir þér kleift að opna hann á einfaldan hátt – með einum snúningi. Tankurinn opnast strax og þú getur losað rykið á þægilegan máta ofan í ruslafötu.

Nettur rafmagnsbursti
Fullkominn fyrir dýrahár
Oft getur verið erfitt að fjarlægja dýrahár úr sófum og teppum. Nettur rafmagnsbursti fylgir með Triflex Cats&Dogs ryksugunni sem hentar einstaklega vel til verksins. Löng hárin í burstanum snúast og sópa dýrahárunum upp í ryksuguna. Burstinn gerir þér þannig kleift að hreinsa jafnvel þrálát óhreinindi á einfaldan en áhrifaríkan hátt.

Rafmagnsryksuguhaus XXL með lýsingu
Snjall og skilvirkur
Bestu mögulegu þrif: Skemmri tíma tekur að losa stærri svæði við ryk og óhreinindi með 28 cm breiðum rafmagnsryksuguhaus Miele Triflex skaftryksugunnar. Rafmagnsryksuguhausinn ber kennsl á mismunandi gerðir gólfefna: ef þú ryksugar til að mynda teppi, eykur ryksugan sjálfkrafa sogkraftinn. Ryksuguhausinn er jafnframt með lýsingu sem tryggir bestu mögulegu sýn og gerir það að verkum að ryk í dimmum hornum á sér enga undankomuleið.