Smeg brauðrist fyrir 2 sneiðar - hvít

Vörunúmer: TSF01WHEU

  26.990 kr

Einstaklega falleg brauðrist úr 50´s línu SMEGTekur 2 brauðsneiðar í einu og er með stillingum fyrir ristun á frosnu brauði, upphitun og beyglu stillingu.

 

Njóttu þess að rista uppáhalds brauðmetið þitt

Morgunmatur eða hádegispása, dögurður eða fordrykkur, hvert sem tilefnið er mun Smeg brauðristin gera það ánægjulegra. Brauðristin er með extra breiðum 36 mm hólfum, getur ristað 2 sneiðar í einu og er með sjálfvirkri miðjujöfnun fyrir jafna ristun brauða af ólíkum stærðum. Að ristun lokinni skýst brauðið sjálfkrafa upp. Þegar þú hefur fundið brauðrist sem þú elskar, munt þú nota hvert tækifæri sem gefst til þess að nota hana.

 

 

Hönnun og tækni

Ristun er hægt að stilla eftir þörfum á skalanum 1-6 og kemur brauðristin með þremur forstilltum kerfum; upphitun, afþýðingu og beyglu stillingu. Upphitun hitar brauð upp sem hefur þegar verið ristað eða þarf að rista meira, afþýðing er fyrir ristun á frosnu brauði og beyglu stilling ristar aðeins aðra hlið brauðsins í báðum hólfum. Brauðristin stendur örugglega á stömum fótum og mögulegt er að festa rafmagnskapalinn undir botninn á tækinu. Affallsbakka úr ryðfríu stáli er auðvelt að fjarlægja og tæma. Auk þess er auðvelt að fjarlægja minni brauðsneiðar úr tækinu á öruggan hátt með því að ýta þeim ofar með vogarstöng.

 

 

Alþjóðleg verðlaun 

Viðtökur 50´s smátækjanna frá Smeg hafa verið frábærar og hafa þau unnið til fjölmargra alþjóðlegra verðlauna. Smeg brauðristar hafa hlotið Good Design Awards, IF Design Awards og Red Dot Design Awards.

 

 

Leiðbeiningar

Hönnun og útlit

LiturHvítur
Vörulína50's Retro Style
Snúningsrofi
Stjórnborð2 takkar + Stopp takki
Litur rafmagnssnúruGrár

Stillingar

Ristun í 2 hólfum
Baguette - Beyglu stilling
Upphitun
Frosið brauð

Afkastageta

Fjöldi brauðsneiða í einu2 sneiðar

Þægindi notanda

Stamur botn
Stig ristunar6 stig
Extra breið hólf fyrir brauð
36 mm
Sjálfvirk miðjujöfnun brauðs
Vogarstöng til þess að ýta ristuðu brauði ofar
Brauðsneiðar skjótast upp að ristun lokinni
Hægt að fjarlægja affallsbakka fyrir mylsnu
Mögulegt að vefja snúru undir tæki

Tæknilegar upplýsingar

Hæð19,8 cm
Breidd31 cm (32,5 cm með vogarstöng)
Dýpt19,5 cm
Heildarafl950 W
Spenna220 - 240 V
Þyngd2,4 kg
Þyngd í pakkningum3,7 kg