Smeg Hraðsuðuketill Bleikur

Vörunúmer: KLF03PKEU

  27.990 kr

Einstaklega fallegur hraðsuðuketill úr 50's línu SMEG. Ketillinn tekur 1.7 líta af vatni sem dugar í um það bil 7 bolla og hann slekkur sjálfkrafa á sér þegar hitastigið nær 100°C.

 

Njóttu þess að hella upp á uppáhalds tebollann þinn

Morgunmatur, eftirmiðdags tetími, stundarpása eða afslöppun að kvöldi til; hvert sem tilefnið er mun Smeg hraðsuðuketillinn gera andartakið eftirminnilegt. Lok ketilsins er með þægilegri mjúkopnun og auðvelt er að fylla hann með vatni. Hraðsuðuketillinn er rúmgóður, getur hitað upp 1,7 lítra af vatni í einu og er með mælistiku til þæginda sem sýnir vatnsmagn í tækinu. 

 

 

Hraðvirkur, öruggur og áreiðanlegur

Hraðsuðuketillinn er úr ryðfríu stáli með emileringu og hitaleiðni hans þar af leiðandi mjög góð. Skamman tíma tekur að hita vatnið í katlinum upp, hann er hljóðlátur og slekkur sjálfkrafa á sér til öryggis þegar 100°C er náð. Ketillinn er með innbyggðum vatnsfilter úr ryðfríu stáli sem hægt er að fjarlægja og þvo, auk þess stendur hann á praktískri botnplötu með stömum fótum. Mögulegt er að festa rafmagnskapalinn undir botnplötuna, setja ketilinn niður á hana hvernig sem hann snýr og snúa honum í 360° á botnplötunni.

 

 

Alþjóðleg verðlaun 

Viðtökur 50´s smátækjanna frá Smeg hafa verið frábærar og hafa þau unnið til fjölmargra alþjóðlegra verðlauna. Smeg hraðsuðukatlar hafa hlotið Good Design Awards og Red Dot Design Awards.

Notendaleiðbeiningar

Hönnun og útlit

LiturBleikur
Vörulína50's Retro Style
StjórnborðVogarstöng
Litur rafmagnssnúruGrár

Þægindi notanda

Rúmtak1,7 L
Stamur botnJá
Ketillinn stoppar sjálfkrafaJá, við 100°C
Vatnsmagni í tæki sést á mælistikuJá
Lok með mjúkopnunJá
Lok með Push-Push opnunJá
Mögulegt að snúa katli í 360° á botnplötuJá
Fjarlægjanlegur ryðfrír vatnsfilterJá
Mögulegt að vefja snúru undir tækiJá

Tæknilegar upplýsingar

Hæð24,8 cm
Breidd22,6 cm
Dýpt17,1 cm
Heildarafl2.400 W
Spenna220 - 240 V
Þyngd1,6 kg
Þyngd í pakkningum2,6 kg